Frétt

Tillaga að endurnýjun starfsleyfis fyrir framhaldsskóla, Bjarkarholti 35, Mosfellsbæ

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Framhaldsskóla Mosfellsbæjar, kt. 480109-0310, endurnýjun starfsleyfis til reksturs framhaldsskóla með mötuneyti í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs skólahúsnæðis, sbr. ákvæði VI. kafla reglugerðar um  hollustuhætti nr. 903/2024 með mötuneyti sbr. ákvæði reglugerðar nr. 103/2010 um gildistöku EB á reglugerð um hollustuhætti er varða matvæli. Gildistími starfsleyfis: 16.06.2026-15.06.2038.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.