Matvælaeftirlit:
- Stendur vörð um öryggi og heilnæmi matvæla með því að fylgjast náið með framleiðslu, dreifingu og sölu.
- Hefur eftirlit með innra eftirliti fyrirtækja.
- Hefur eftirlit með öflun og dreifingu neysluvatns og umgengni á brunnsvæðum vatnsverndarsvæða.
- Fylgir því eftir að viðhald og umgengni um húsnæði og athafnasvæði matvælafyrirtækja sé í lagi.
- Fylgist með því að farið sé að reglum um merkingar matvæla svo neytendur hafi sem gleggstar upplýsingar um næringargildi, innihaldsefni og geymsluþol vörunnar.
- Hefur eftirlit með að notkun aukaefna og varnarefna í matvælum sé í samræmi við lög og reglugerðir.
- Tekur sýni úr matvælum og framleiðslu umhverfi svo hægt sé að fylgjast með því að fyllsta hreinlætis sé gætt í fyrirtækinu og rétt sé staðið að framleiðslu og geymslu matvælanna.
- Gefur umsagnir um rekstrarleyfi fyrir gististaði og veitingaleyfi sbr. lög nr. 85/2007.
- Miðlar og dreifir fræðslu- og leiðbeiningarefni fyrir matvælafyrirtæki, starfsfólk þeirra og almenning.