Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir gististað að Dalshrauni 15, Hafnarfirði.

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Hótel Vík ehf., kt. 650906-0550, starfsleyfi til reksturs gististaðar í flokki II í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs gististað í flokki II, íbúðir, sbr. ákvæði V. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum sem fram koma í reglugerðum um hollustuhætti og ákvæðum reglugerðar nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi