Frétt

Heilbrigðiseftirlitið varar við matvælum með ómerktum ofnæmisvaldi

Ikea hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar,Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes stöðvað sölu og innkallað súkkulaðibitakökudeig þar sem varan inniheldur ómerktan óþols- og ofnæmisvald (HNETUR).

Ikea hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna súkkulaðibitakökudeig þar sem að varan inniheldur ómerktan óþols- og ofnæmisvald. Vegna mistaka var vöru pakkað í rangar umbúðir. Á umbúðum kemur ekki fram að varan inniheldur hnetur.

Neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hnetum eru varaðir við að neyta vörunnar. Varan er örugg þeim sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir hnetum.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við.

Vörumerki: IKEA

Vöruheiti: Súkkulaðibitasmákökudeig

Best fyrir: 12.01.2023

Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C

Framleiðandi: Miklatorg hf. Kauptúni 4, 210 Garðabæ, sími 520 2500

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að skila henni í verslun IKEA.

Nánari upplýsingar veitir IKEA.

https://www.ikea.is/is