Innköllun á Barbells Coco Choco próteinstykkjum. Gæti innihaldið aðra tegunds af próteinsúkkulaði eða Peanut Cloud sem inniheldur ofnæmisvaldana jarðhnetur, sojaprótein og sojalesitín.
Heildsalan Core ehf. hefur innkallað Barbells Coco Choco próteinstykki í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF).
Umbúðir af Coco Choco gætu innihaldið aðra tegund af próteinsúkkulaði eða tegundina Peanut Cloud.
Peanut Cloud inniheldur ofnæmisvaldana mjólk, jarðhnetur, sojaprótein og sojalesitín. Jarðhnetur, sojaprótein og sojalesitín eru ekki tilgreindir ofnæmisvaldar á umbúðum vörunnar.
Upplýsingar um innkallaða vöru:
- Tegund vöru / Product Type: Soft Protein Bar
- Vöturmerki: Barbells
- Vöruheiti / Product Name: Barebells Coco Choco
- Lotunúmer/Batch number: L6055-R.
- Fyrningardagur / Best Before: 24-02-2027.
- Nettóþyngd: 55,0g.
- Framleiðandi: Barebells.
- Framleiðsluland: Svíþjóð
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Varan var seld í eftirfarandi verslunarkeðjum: Hagkaup, Bónus, Krónunni, Melabúðinni, Fjarðarkaup, N1 og Olís.
Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til og eru með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk, jarðhnetum, sojapróteini eða sojalesitíni eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða skila til Core heildsölu, Víkuhvarfi 1, Kópavogi gegn fullri endurgreiðslu.
Core heildsala biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt senda tölvupóst á netfangið: core@core.is.
