Innköllun á BRIKK súkkulaðiköku vegna villandi merkinga á umbúðum
BRIKK innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) BRIKK Súkkulaðiköku.
Súkkulaðikakan inniheldur ofnæmisvaldinn möndlusmjör en valkvæð varúðarmerking tilgreinr að varan gæti innihaldið snefilmagn af möndlum. Þessi framsetning getur verið villandi fyrir neytendu. .
Upplýsingar um vöruna:
- Framleiðandi: Brikk Eldhús ehf
- Vörumerki: BRIKK
- Vöruheiti: Súkkulaðikaka
- Geymsluþol: Best fyrir dagsetning. 2/9/26
- Nettó þyngd: 650 g
- Strikanúmer: 5694230457311
- Dreifing: Verslanir Krónunar Mosfellsbæ, Grafarholti, Bíldshöfða, Lindum, Akrabraut, Flatarhrauni, Norðurhellu, Austurveri, Skeifunni, Borgartúni, Hallveigarstíg, Granda, Fitjum og Selfossi
Verslanir Hagkaupa Skeifunni, Garðabæ og Spönginni.
Neytendur með ofnæmi fyrir möndlum eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til Brikk Eldhús ehf, Dalvegi 32b, 201 Kópavogi, gegn fullri endurgreiðslu.
BRIKK eldhús ehf. biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á netfangið: BRIKK@BRIKK.IS

