Frétt
Innköllun á fæðubótarefninu Liposomal NMN frá Codeage.
Mamma veit best ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, ákveðið að innkalla fæðubótarefnið Liposomal NMN frá Codeage þar sem iunnihaldsefnið Nikótínamíð Mónónúkleótíð (NMT) flokkast sem nýfæði og óleyfilegt til notkunar í matvæli þ.m.t. fæðubótarefni.
Innköllunin tekur til eftirfarandi vöru:
- Vörumerki: Codeage
- Vöruheiti: Liposomal NMN
- Framleiðandi: Codeage LLC
- Framleiðsluland: B.N.A.
- Pakkning: 30 hylki í dollu
- Lotunúmer: 2025-26403
- Best fyrir: 05/2028
- Framleiðandi: Codeage LLC
- Innflytjandi: Mamma veit best ehf.
Dreifing: Varan var seld aðeins í versluninni Mamma veit best og í vefverslun www.mammaveitbest.is
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna eru beðnir um að hætta notkun hennar, farga eða skila heni aftur í verslun Mamma veit best. Dalbrekku 30, Kópavogi. (sjá nánar í fréttatilkynningu neðar frá fyrirtækinu).
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 445-8828 eða með tölvupósti á info@mammaveitbest.is.
Mamma veit best ehf. biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem innköllunin kann að valda.
