Frétt
Innköllun á G.T. wasabi rice crackers 125gr vegna of mikil magns af aðskotaefninu glýsidýl fitusýruestera.
Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF) innkallað vöruna G.T. wasabi rice crackers 125gr vegna of mikil magns af aðskotaefninu glýsidýl fitusýruestera.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Framleiðsluland: Holland
- Vörumerki: Golden Turtle
- Vöruheiti: Wasabi rice cracker
- Best fyrir: 02/02/27 - 24/02/27 - 19/03/27 - 18/08/27 - 05/06/27
- Nettómagn: 125gr
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Heuschen & Schrouff Oriental Foods Trading B.V.
Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða skila í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur.
Fréttatilkynning frá Lagsmanni ehf
