Frétt
Innköllun á kókospálmasykri frá H-Berg vegna málmaðskotahlutar
Fyrirtækið H-Berg hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) þar sem málmaðskotahlutur fannst í vörunni.
Fyrirtækið H-Berg ehf. hefur innkallað Kókospálmasykur vegna málmaðskotahlutar.
- Vörumerki: H-Berg ehf.
- Vöruheiti: Kókospálmasykur
- Framleiðandi: H-Berg ehf.
- Framleiðsluland: Ísland
- Nettóþyngd: 300g
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Lotunúmer: 220501 og best fyrir (B.F): 06/27
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreifing: Fjarðakaup og verslanir Krónunnar og Hagkaups.
H-Berg biður þá viðskiptavini sem enn eiga vöruna að farga henni eða skila henni gegn endurgreiðslu til H-Bergs að Grandatröð 12, 220 Hafnarfirði eða í þá verslun sem hún var keypt.
