Frétt

Innköllun á Monini rauðu pestói með ólífuolíu, Monini vegan grænu pestói með ólífuolíu og Monini ólífum Bella Di Cerignola

Krónan hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, innkallað þrjár vörur frá framleiðandanum Monini; Monini rautt pestó með ólífuolíu, Monini vegan grænt pestó með ólífuolíu og Monini ólífur Bella Di Cerignola. Innköllun er  gerð þar sem upplýsingar á umbúðum varanna eru ekki á því tungumáli sem reglugerð gerir kröfu um og þarfnast vörurnar því endurmerkingar.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti: Pestó rautt með ólífuolíu

Vörumerki: Monini

Nettómagn: 190 gr

Framleiðandi: Monini SPA

Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14

Framleiðsluland: Ítalía

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 27.01.2028

Geymsluskilyrði: Þurrvara

Dreifing: Krónan, Dalvegi 10-14

Vöruheiti: Vegan grænt pestó með ólífuolíu

Vörumerki: Monini

Nettómagn: 190gr

Framleiðandi: Monini SPA

Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14

Framleiðsluland: Ítalía

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 20.06.2027

Geymsluskilyrði: Þurrvara

Dreifing: Krónan, Dalvegi 10-14

Vöruheiti: Ólífur Bella Di Cerignola

Vörumerki: Monini

Nettómagn: 150 gr

Framleiðandi: Monini SPA

Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14

Framleiðsluland: Ítalía

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 27.08.2026

Geymsluskilyrði: Þurrvara

Dreifing: Krónan, Dalvegi 10-14

Viðskiptavinir sem hafa keypt vörurnar í verslunum Krónunnar er bent á að hægt er að skila þeim gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Fyrir nánari upplýsingar um innköllun varanna er hægt að senda tölvupóst á netfangið innkallanir@kronan.is.

Fréttatilkynning Krónunar