Frétt

Innköllun á Ora maískorni

Fyrirtækið Ora hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) innkallað Ora maískorn 420g vegna hugsanlegs málm aðskotahluts í dósinni.

Upplýsingar um vöru sem er innkölluð.

Vörumerki: Ora

Vöruheiti: Maískorn, 420g

Framleiðandi: ORA (Myllan-ORA ehf.) kt 660169-1729

Framleiðsluland: Ísland

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Lotunúmer L105293, BF. 21.01.2030

Geymsluskilyrði: Hilluvara

Dreifing: Aðföng,

Krónan ehf Vöruhótel,

Samkaup hf - Samskip Vöruhús

Neytendum sem keypt hafa vöruna með þessu lotunúmeri er bent á að neyta hennar ekki.

Neytendur geta skilað vörunni til OJK-ÍSAM ehf, Blikastaðavegur 2-8, 112 Reykjavík eða ORA, Vesturvör 12, 200 Kópavogur eða þar sem varan var keypt.

Frekari upplýsingar veitir gæðastjóri ORA í síma 856 2780 eða á netfangið quality@ora.is.

Fréttatilkynning