Frétt

Innköllun á pistasíum, söltuðum og ristuðum merktar Krónunni vegna óleyfilegs varnarefnis.

Fyrirtækið Krónan ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) eftir að varnarefnið Clothianidin mældist í vörunni.

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Krónan
  • Vöruheiti: Pistasíuhnetur ristaðar og saltaðar
  • Strikamerki: 5694310451291
  • Best fyrir dagsetning: 03.01.2027
  • Nettómagn: 200 g
  • Framleiðandi: Ziba Naghsh
  • Innflytjandi: Salvía ehf.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar.

Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda. Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á netfangið innkallanir@kronan.is.

Fréttatilkynning frá Krónunni.