Frétt

Innköllun á Stjörnu Prótein poppi Salted Caramel vegna vanmerkingar á ofnæmisvöldum. Varan inniheldur mjólk.

Fyrirtækið Iðnmark hefur innkallað Stjörnu Prótein popp Salted Caramel í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar,Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.

Ástæða innkölluninnar er vanmerking á ofnæmisvalda. Í innihaldslýsingu vantar að tilgreina Mjólk sem ofnæmisvald.

Upplýsingar um vöruna

Vörumerki: Stjörnu

Vöruheiti: Prótein popp Salted Caramel

Framleiðandi: Iðnmark hf.

Framleiðsluland: Ísland

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 03.11.26, 20.10.26, 05.10.26

Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita

Dreifing: Krónan, verslanir Samkaupa og Hagkaup

Varan inniheldur mjólk sem ekki er getið um í innihaldslýsingu vörunnar. Varan getur því

valdið ofnæmisviðbrögðum hjá einstaklingum með ofnæmi/óþol fyrir mjólk.

Innköllunin varðar eingöngu einstaklinga með ofnæmi/óþol fyrir mjólk. Varan er ekki talin

hættuleg öðrum neytendum.

Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk skulu ekki neyta vörunnar heldur farga eða

skila í verslun til að fá endurgreiðslu.

Iðnmark ehf. biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Fréttatilkynning fyrirtækis