Innköllun Gerber Biscuits Arrowroot ungbarnakexi vegna möguleika á að aðskotahlutur finnist í vörunni.
Smartco ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) Gerber Biscuits Arrowroot ungbarnakex. Aðskotahlutir gæti fundist í vörunni n.t.t. plast og pappi.
Upplýsingar um vöruna.
Vöruheiti: Biscuits arrowroot
Vörumerki: Gerber
Framleiðandi: Nestlé S.A.
Lotunúmer: 5198565504, 5202565504, 5203565504, 5204565504, 5205565504, 5209565504, 5210565504, 5211565504, 5233565504, 5238565504, 5239565504, 5239565505, 5240565505, 5245565505, 5246565505, 5251565505, 5252565505, 5253565505, 5254565505, 5258565505, 5259565505.
Best fyrir dagsetning: Allar dagsetning á tímabilinu16. október 2026 til 16. desember 2026.
Nettó þyngd: 155g
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Strikanúmer: 015000005962
Dreifing: Verslun Kosts, Miðhrauni 2, 210 Garðabæ og í netverslun: Kostur.is.
Þeir sem eiga umrædda vöru enn þá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, farga eða skila í verslun Kosts, Miðhraun 2, 210 Garðabæ.
Smartco ehf. biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband smartco@smartco.is eða í síma 560-2500.
