Frétt

Innköllun á Wild Pepper Sichuan þar sem varnarefni í vörunni eru yfir mörkum.

Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur innkallað Wild Pepper Sichuan í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF).

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Eaglobe

Vöruheiti: Wild Pepper Sichuan

Best fyrir: 30.6.2027 og 30.4.2027

Nettómagn: 57g og 500g

Geymsluskilyrði: Þurrvara

Framleiðandi: Eaglobe, 9/F Si Toi, 62-63 Connaught Road West, Hong Kong, China

Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Fiska Nýbýlavegi 6, Kópavogi.

Fréttatilkynning fyrirtækis