Frétt
Innköllun Palm Sugar frá Royal Orient vegna of mikils magns af brennisteinsdíoxíð.
Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) vegna of mikils magns af brennisteinsdíoxíð í vörunnni.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Royal Orient
- Vöruheiti: Palm sugar
- Best fyrir: 01.10.2026
- Nettómagn: 1 kg
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Asia Express Food
- Framleiðsluland: Thailand
- Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila í verslun Fiska á Nýbýlavegi 6, Kópavogi.
Fréttatilkynning frá Lagsmanni/ Fiska.is
