Frétt

Innköllun á sælgæti "S-Märke Salt Skum" vegna aðskotahlutar

Core ehf. hefur stöðvað sölu og innkallað S-Märke Salt skum sælgæti vegna aðskotahlutar (plastþráður).

Heildverslunin Core ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna S-Märke Salt skum 70 g vegna aðskotahlutar (plastþráður).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Candy people
  • Vöruheiti: S-Märke Salt skum 70 g
  • Innflytjandi: Core heildssala
  • Best fyrir dagsetning/lotunúmer: 13-10-2024 / 241013
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup
  • Ástæða innköllunar: Aðskotahlutur

Neytendur sem hafa keypt tilgreinda vöru eru varaðir við því að neyta hennar og beðnir um að skila vörunni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi.