Innköllun á sælgæti "S-Märke surt Skum" vegna aðskotahlutar
Core ehf. hefur stöðvað sölu og innkallað S-Märke Salt skum sælgæti vegna aðskotahlutar.
Heildverslunin Core ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna S-Märke Surt skum 70 g vegna aðskotahlutar.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Candy people
 - Vöruheiti: S-Märke surt skum 70 g
 - Innflytjandi: Core heildssala
 - Best fyrir dagsetning/lotunúmer: 17-10-2024
 - Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup
 - Ástæða innköllunar: Aðskotahlutur
 
Neytendur sem hafa keypt tilgreinda vöru eru varaðir við því að neyta hennar og beðnir um að skila vörunni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi.
