Frétt

Innköllun á sælgæti - Sanders Milk Chocolate Sea Salt Caramels

Costco á Íslandi hefur stöðvað sölu og innkallað Sanders Milk Chocolate Sea Salt Caramels. Varan gæti innihaldið aðskotahlut (plast)

Fyrirtækið Costco Wholesale Iceland ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna Sanders Milk Chocolate Sea Salt Caramels vegna þess að varan gæti innihaldið aðskotahlut (plast).

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Sanders
  • Vöruheiti: Milk Chocolate Sea Salt Caramels
  • Innflytjandi: Costco
  • Best fyrir / Lotunúmer: 27/02/2024 eða fyrr
  • Framleiðsluland: USA
  • Dreifing: Viðskiptavinir Costco

Costco biður þá viðskiptavini sem enn eiga vöruna að farga henni eða skila henni gegn endurgreiðslu í verslun sína í Costco Kauptúni 3, Garðabæ.

Fréttatilkynning Costco