Frétt
Innköllun Shinode Sushi Rice (1kg) frá Sunclad sem Fiska.is hefur flutt inn selt í verslun sinni.
Fyrirtækið Lagsmaður ehf/Fiska.is hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF) þar sem lífrænn leysir fannst í vörunni.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Sunclad.
- Vöruheiti: Shinode premium sushi rice 1kg.
- Best fyrir: 23.12.27.
- Nettómagn: 1kg.
- Geymsluskilyrði: Þurrvara.
- Framleiðandi: Sunclad, Via Pietro Bosso 53/A, 15030 Villanova Monferrato (AL).
- Framleiðsluland: Ítalía.
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur.
Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Fiska Nýbýlavegi 6.
