Frétt
Tillaga að starfsleyfi fyrir skólahúsnæði, Ögurhvarfi 6, Kópavogi.
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Klettabæ ehf., kt. 550318-0830, starfsleyfi til reksturs skólahúsnæðis að Ögurhvarfi 6, Kópavogi, í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs skólahúsnæðis, sbr. ákvæði VI. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfi.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.