Tillaga að endurnýjun starfsleyfis fyrir samkomuhús með móttökueldhúsi, Ljósatröð 2, Hafnarfirði
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Frímúrarahúsinu Ljósatröð, kt. 590169-2699, endurnýjun starfsleyfis til reksturs samkomuhúss með móttökueldhúsi í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs samkomuhúss, sbr. ákvæði III. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024 með móttökueldhúsi sbr. ákvæði reglugerðar nr. 103/2010 um gildistöku EB á reglugerð um hollustuhætti er varða matvæli. Gildistími starfsleyfis: 15.04.2026-14.04.2038.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.