Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir íþróttahús við Helgafellskóla

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Mosfellsbæ kt.470269-5969 starfsleyfi til að reka íþróttahús við Helgafellsskóla í framhaldi af umsókn sveitarfélagsins þar um.

Leyfið tekur til reksturs íþróttahúss við Helgafellskóla, Gerplustræti 14, Mosfellsbæ, sbr. ákvæði VIII. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr.903/2024. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum sem fram koma í reglugerðum um hollustuhætti og ákvæðum reglugerðar nr.803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi