Costco innkallar Eat Real linsubaunaflögur
Varan inniheldur glúten en er merkt glútenfrí
Heilbrigðiseftirlitið varar fólk með glúten óþol eða ofnæmi við neyslu á Eat Real linsubaunaflögum. Varan inniheldur glúten en er merkt glútenfrí. Fyrirtækið Costco Wholesale Iceland ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlitið.
Varan er örugg þeim sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir glúteni.
Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Eat Real
- Vöruheiti: Eat Real multibox
- Innflytjandi: Costco
- Best fyrir (Lotunúmer) : 19/5/2024, 26/5/2024, 27/5/2024 (N09/10/11/3152, N09/10/11/3152, N09/11/12/14/3145)
- Dreifing: Viðskiptavinir Costco
Costco biður þá viðskiptavini sem enn eiga vöruna að skila henni gegn endurgreiðslu í verslun sína í Costco Kauptúni 3, Garðabæ.
Fréttatilkynning Costco english
